flugfréttir
JetSMART kaupir dótturfélag Norwegian í Argentínu
- Merki Norwegian Air Argentina mun hverfa á næstu mánuðum
Boeing 737-800 þota Norwegian
Norska flugfélagið Norwegian hefur selt alla starfsemina sína í Argentínu til samkeppnisflugfélagsins JetSMART sem hefur því tekið yfir rekstri dótturfélagsins Norwegian Air Argentina, aðeins 14 mánuðum eftir fyrsta áætlunarflugið sem flogið var í október 2018.
Fram kemur að kaupin munu ekki hafa nein áhrif á áætlunarflug félagsins gagnvart farþegum en Norwegian Air Argentina
mun renna saman við rekstur JetSmart Airlines og mun norska nafnið því hverfa af markaðnum eftir nokkra mánuði.
Norwegian mun taka til baka þær þrjár Boeing 737-800 þotur sem hafa flogið að undanförnu fyrir Norwegian Air Argentina
og verða þær ferjaðar á næstunni til Evrópu og verður þeim skipt út fyrir A320 þotur JetSmart Airlines.
„Þar sem að Norwegian er að færa sig úr því að einblína á aukinn umsvif yfir í að ná fram hagnaði þá erum við
að grípa til allra þeirra aðgerða til þess að tryggja að Norwegian geti haldið áfram að stefna fram á við“, segir
Geir Karlsen, framkvæmdarstjóri félagsins.
JetSMART er dótturfélag Indigo Partners sem á einnig og rekur Wizz Air og Frontier Airlines
Norwegian hefur að undanförnu dregið saman seglin í starfsemi sinni í þeim tilgangi að ná fram hagnaði á erfiðum
tímum í fluginu en til að mynda hefur félagið hætt öllu langflugi frá Evrópu yfir Atlantshafið.
JetSMART er suður-amerískt lágfargjaldafélag með höfuðstöðvar í Santiago í Chile en félagið er í eigu Indigo Partners
sem er móðurfélag Wizz Air og Frontier Airlines og það fyrirtæki sem hugðist koma WOW air til bjargar rétt
fyrir gjaldþrot þess.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.