flugfréttir

400.000 færri blaðsíður af pappír í stjórnklefanum

- Nordica (Regional Jet) stefnir á pappírslausan stjórnklefa

16. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:11

ATR 72-600 flugvél Nordica (Regional Jet)

Eistneska flugfélagið Nordica (Regional Jet) stefnir á „pappírslausan flugstjórnarklefa“ á þessu ári um borð í öllu áætlunarflugi en með því mun félagið spara sér og umhverfinu um 400.000 blaðsíður af stærðinni A4.

Regional Jet byrjaði að draga úr pappírsnotkun árið 2019 en flugfélagið áætlar að það hafi farið með heilan almenningsgarð af trjám í pappírsnotkun árlega.

Félagið hefur fengið samþykki frá flugmálayfirvöldum í Eistlandi til þess að styðjast eingöngu við gögn á tölvutæku formi en nú þegar eru mörg flugfélög sem hafa skipt út flugkortum og öðrum gögnum út fyrir spjaldtölvur.

„Í tengslum við pappírslausan stjórnklefa þá munum við komast hjá því að nota um 400.000 blaðsíður af stærðinni A4 sem annars hefðum við notað í að prenta út ýmislegt. Það samsvarar um tveimur tonnum af pappír“, segir Toomas Uibo, markaðsstjóri Regional Jet.

Nordica (Regional Jet) hefur yfir 20 flugvélar í flota sínum af gerðinni ATR 72-600 og Bombardier CRJ700 og CRJ900 og flýgur félagið frá Tallinn til áfangastaða í Svíþjóð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga