flugfréttir
Kínverskt Boeing-flugfélag stefnir á fyrstu pöntun til Airbus
- Xiamen Airlines hefur 167 þotur í flotanum sem eru allar af Boeing-gerð
Frá stofnun Xiamen Airlines árið 1984 hefur félagið eingöngu haft Boeing-þotur í flotanum
Kínverska flugfélagið Xiamen Airlines ætlar sér að leggja inn sína fyrstu pöntun í Airbus-farþegaþotur en flugfélagið hefur í 35 ára sögu félagsins einungis haft þotur frá Boeing í flota sínum.
Xiamen Airlines hefur 167 þotur í flotanum af gerðinni Boeing 737-700, 737-800, Boeing 737 MAX 8 auk
Dreamliner-þotna af gerðinni Boeing 787-8 og Boeing 787-9.
Félagið íhugar nú að panta tíu Airbus A321neo þotur sem yrðu afhentar frá árinu 2021 og myndu afhendingar standa
fram til ársins 2023.
Tilkynningin frá Xiamen Airlines kemur degi eftir að Bandaríkin og Kína undirrituðu Phase One viðskiptasamkomulagið
sem mun auðvelda Boeing að selja fleiri flugvélar til Kína.
Með samkomulaginu hafa stjórnvöld í Kína fallist á að auka innflutning á vörum og þjónustu frá Bandaríkjunum um
allt að 200 milljarða bandaríkjadali á næstu tveimur árum og þar á meðal á innflutningi á flugvélum en Boeing hefur
átt í samskiptum við Kína vegna sölu á flugvélum í yfir hálfa öld.
Xiamen Airlines, sem hefur 138 Boeing 737-800 þotur í flotanum, hefur fengið tíu Boeing 737 MAX 8 þotur afhentar
en félagið á einnig von á tíu vélum af gerðinni Boeing 737 MAX 10.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.