flugfréttir
Gátu ekki flogið Dash 8 vélunum vegna óvenju lágs loftþrýstings
- Felldu niður 70 flugferðir í dag þar sem þrýstingur fór niður fyrir 948 hPa
Bombardier Dash 8 flugvél Widerøe í lendingu á Gardermoen-flugvellinum í Osló á dögunum
Norska flugfélagið Widerøe neyddist til þess að fella niður um 70 flugferðir í dag vegna óvenju lágs loftþrýstings yfir Noregi.
Lægðin sem hefur valdið storminum Ciara, sem hefur valdið usla á Bretlandseyjum um helgina og í gær, er nú stödd
yfir Noregi en þar hefur loftþrýstingur víðast hvar farið niður í 940 millibör sem er með því lægsta sem norskir veðurfræðingar
hafa séð í nokkra áratugi.
Flugferðirnar sjötíu, sem Widerøe þurfti að fella niður í dag eiga það sameiginlegt að nota átti Bombardier Dash 8 flugvélar
til flugsins.
Tæknilega séð hefðu flugvélarnar geta flogið í dag en loftþrýstingurinn hefur verið það lágur í dag í norðurhluta
Noregs að þrýstingurinn fór á mörgum stöðum niður fyrir það lægsta sem hægt er að stilla hæðarmælana um borð í vélunum.
Skjáskot af frétt í norska ríkissjónvarpinu þar sem flugmaður hjá Widerøe útskýrir hæðarmælin
Í kvöld var loftþrýstingurinn á flugvellinum í Bodø til að mynda í 950 hPa klukkan
22:20 og 946 á flugvellinum í Bardufoss og 945 á flugvellinum í Tromsø. Loftþrýstingurinn fór samt enn neðar fyrr í dag á mörgum flugvöllum í norðurhluta
Noregs sem eiga það sameiginlegt að vera flestir áfangastaðir í leiðarkerfi Widerøe sem notar Dash 8 flugvélar til flugsins.
Bombardier Dash 8 flugvélar Widerøe hafa stillanlega hæðarmæla eins og flestar aðrar flugvélar sem notaðir eru til þess að stilla loftþrýsting miðað við
sjávarmál (QNH) en neðri mörk mælanna eru 948 hPa (millibör).
Rétt stilling á mælunum er nauðsynleg til þess að tryggja að flugvélarnar séu í réttri flughæð til að viðhalda aðskilnaði bæði
gagnvart öðrum flugvélum og frá hæð lands yfir sjávarmáli.
Lægðin eins og hún leit út í dag yfir Noregi
Á mörgum stöðum í Noregi fór loftþrýstingurinn langt niður fyrir þessi mörk sem gerist ekki á hverjum degi í Noregi en
met var sett á 22 norskum veðurathugunarstöðvum í dag er kemur að lágum loftþrýstingi.
Þrátt fyrir þetta var ekki met slegið á landsvísu og stendur en norska metið er loftþrýstingur fór niður í 938.5 hPa en það
gerðist árið 1907.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.