flugfréttir
Airbus stöðvar framleiðslu tímabundið í 4 daga
- Innleiða nýjar reglur um hreinlæti í verksmiðjum vegna COVID-19
Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse
Airbus mun stöðva framleiðslu í flugvélaverksmiðjum sínum í Frakklandi og á Spáni í fjóra daga á meðan framleiðandinn innleiðir strangar reglugerðar um hreinlæti vegna heimsfaraldursins.
Airbus segir að verið sé að framfylgja nýjum starfsháttum í löndunum tveimur varðandi hreinlæti á vinnustöðum
og mun það taka smá tíma að undirbúa ferlið í flugvélaverksmiðjunum.
„Við munum stöðva framleiðslu á íhlutum og samsetningu á nýjum flugvélum tímabundið bæði í Frakklandi
og á Spáni í fjóra daga“, segir í tilkynningu.
Airbus ætlar að reyna að auka eins og hægt er störf sem hægt er að vinna að heiman til að fækka starfsmönnum á vinnustöðum til að draga úr hættunni á smiti.
Hlutabréf í Airbus halda áfram að falla á verðbréfamörkuðum og hafa þau lækkað um 45% frá því í byrjun
mars sem er sambærilegt þeirri lækkun sem varð í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum
þann
11. september árið 2001.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.