flugfréttir

Flugvélaleiga höfðar mál gegn Boeing vegna 737 MAX

- Segja að Boeing neiti að endurgreiða eftir að pöntun var afturkölluð

23. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:15

Flugvélaleigan segir að Boeing neiti að endurgreiða til baka þá upphæð sem greitt hafi verið inn á pöntunina sem búið er að hætta við

Flugvélaleigufyrirtækið ALAFCO í Kúvæt hefur höfðað mál gegn Boeing vegna pöntunar fyrirtækisins á Boeing 737 MAX en ALAFCO segir að Boeing hafi ekki endurgreitt fyrirtækinu þær greiðslur sem greiddar hafa verið til framleiðandans eftir að búið var að hætta við pantanir í þotuna.

ALAFCO hafði pantað alls 40 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX en fyrst var staðfest pöntun í tuttugu þotur á Farnborough flugsýningunni árið 2012 að andvirði 279 milljarða króna.

Fimm árum síðar lagði ALAFCO inn aðra pöntun í tuttugu fleiri þotur sömu gerðar en í dag hefur fyrirtækið hætt við pöntun sína í 737 MAX eins og hún leggur sig.

ALAFCO segir hinsvegar að Boeing neiti að endurgreiða fyrirtækinu þær upphæðir sem hafa verið lagðar inn á pöntunina sem eru forsendur kærunnar sem lögð hefur verið inn fyrir dómstól í Chicago þar sem Boeing hefur höfuðstöðvar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga