flugfréttir
De Havilland fær leyfi til að breyta Dash 8 yfir í fraktvélar
Tölvugerð mynd af Dash 8-200 í litum 748 Air Services
Kanadíski flugvélaframleiðandinn De Havilland Aircraft tilkynnti í dag að framleiðandinn hafi fengið leyfi frá flugmálayfirvöldum í Kanada fyrir breytingum á Dash-8 flugvélum yfir í fraktvélar.
Leyfið sem gefið verður út nær til Dash 8-100, 200 og Dash 8-300 flugvélum yfir í vöruflutningavélar
sem nefnist í þessu samhengi „Simplified Package Freighters“ en tilgangurinn er að koma til
móts við aukna eftirspurn í vöruflutningaflugi vegna COVID-19.
De Havilland hefur nú þegar fengið beiðni í að láta breyta fjórum Dash 8-100 flugvélum í fraktvélar frá
breska fyrirtækinu 748 Air Services sem sér um farþega- og fraktflug í þágu mannúðaraðstoðar í
löndum í Afríku og verður fyrirtækið það fyrsta til þess að fá breytta Dash 8 flugvél.
748 Air Services, sem hefur höfuðstöðvar á Wilson-flugvellinum í Nairobi í Kenýa, markaðssetur
sig sem sérhæfður flutningaaðili í fraktflugi með þá eiginleika að geta brugðist mjög skjótt
við verkefnum af ýmsu tagi.
Þá hefur fyrirtækið einnig óskað eftir að láta breyta Dash 8-400 flugvélum yfir í fraktvélar en breytingarnar
ganga út á að fjarlægja sæti úr farþegarými vélanna og koma fyrir sérstöku gólfi með festingum fyrir frakt.
Dash 8-100 og -200 vélarnar geta eftir breytingar tekið við 2.9 tonnum af frakt á meðan Dash 8-300
getur borið 4.3 tonn og þá verður hægt að koma fyrir 8.163 kílóum af frakt fyrir um borð
í Dash 8-400 vélunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.