flugfréttir
Emirates SkyCargo flýgur með frakt til 30 nýrra áfangastaða
Emirates SkyCargo flaug í mars með frakt til 45 áfangastaða í leiðarkerfinu en í dag eru þeir orðnir 75 talsins
Emirates SkyCargo, fraktflugfélag Emirates, hefur aukið umsvif sín til muna frá því í mars í kjölfar kórónaveirufaraldursins og hefur áfangastöðum félagsins fjölgað töluvert.
Fraktflugsáfangastaðir í leiðarkerfi Emirates SkyCargo voru um 45 talsins í mars en í dag hafa um þrjátíu nýir áfangastaðir
bæst við í hópinn og flýgur félagið núna til 75 flugvalla í sex heimsálfum.
Eins og hjá fleiri flugfélögum þá hefur verið nóg af verkefnum hjá Emirates SkyCargo er snýr að COVID-19 heimsfaraldrinum
við að fljúga lækningavörum og sjúkragögnum til annara landa.
Meðal áfangastað sem félagið hefur byrjað að fljúga til eru Colombo á Sri Lanka, Conakry
í Gíneu, Dakar í Senegal, Dakha í Bangladesh, Dublin, Khartoum í Súdan, Kuala Lumpur, Perth og til Quito í Ekvador.
Fraktflugfélagið, sem hefur líkt og Emirates höfuðstöðvar í Dubai, flaug um 2.500
flugferðir frá Dubai í apríl eða um 83 brottfarir á dag en sl. vikur hefur brottförum fjölgað
upp í 100 á dag sem samsvarar um 3.000 flugferðum í mánuði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.