flugfréttir
Franski flugherinn fær fyrstu ISR eftirlitsvélina frá King Air
Fyrsta ISR (King Air 350) flugvélin fyrir franska flugherinn
Franski flugherinn hefur fengið fyrstu ISR flugvélina afhenta frá Beechcraft sem byggir á King Air flugvélinni og er vélin sérstaklega útbúin fyrir eftirlitsflug, gæsluflug og fyrir flugferðir í þeim tilgangi að afla leynilegra upplýsinga.
Flugvélin er fyrri vélin af þeim tveimur sem franski flugherinn pantaði frá Beechcraft en
flugherinn stefnir á að vera komin með átta slíkar flugvélar fyrir árið 2030.
Vélin er herútgáfa af King Air 350 flugvélinni og kemur hún með sérhæfðum búnaði sem
inniheldur skynjara sem safna saman upplýsingum um rafsegulsbylgjur og uppruna þeirra
auk myndatökubúnaðar sem notaðar verður við eftirlitsflug.
ISR flugvélin getur flogið upp í 32.000 feta hæð og er hámarksfarflugshraði vélarinnar 263 hnútar
og þá hefur vélin flugdrægi upp á 2.600 kílómetra.
Ein ISR (King Air 350) flugvél er metin á 3,4 milljarða króna en hefðbundin farþegaútgáfa
af King Air 350 kostar hinsvegar um 1 milljarð króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.