flugfréttir
22 látnir í flugslysi í Úkraínu
- Antonov An-26 herflutningavél fórst með 28 manns um borð

28 manns voru um borð í flugvélinni sem fórst í kvöld og þar af sjö manna áhöfn
Að minnsta kosti 22 eru látnir í flugslysi eftir að úkraínsk herflutningaflugvél af gerðinni Antonov An-26 brotlenti skammt frá Kharkiv-herstöðinni nálægt borginni Chuhuiv í Úkraínu í kvöld.
Fram kemur að um borð hafi verið 21 nýliði í úkraínska flughernum frá Kharkiv-herskólanum
ásamt sjö manna áhöfn og var flugvélin í æfingarflugi þegar hún
brotlenti.
Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan 18:00 í kvöld að íslenskum tíma
og er aðeins vitað um tvo sem lifðu slysið af en þeir eru báðir
með brunasár á
90 prósent líkamans.

Slysið átti sér stað í austurhluta Úkraínu í kvöld rétt fyrir klukkan 18:00 að íslenskum tíma
Búið er að ná 22 líkum af slysstað en ekki er vitað um afdrif
fjögurra sem er saknað. Mikill eldur kom upp í flaki vélarinnar.
Forseti Úkraínu hefur sent samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra
sem létust í slysinu í kvöld og óskað þeim sem lifðu af skjótum bata.
Verið er að senda flugslysasérfræðinga á vettvang til að hefja
rannsókn á slysinu en orsök þess eru ókunn.
Flugvélin var herflutningavél af gerðinni Antonov An-26

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.