flugfréttir
Airbus kynnir ACJ TwoTwenty viðskiptaþotuna
Airbus Corporate Jet (ACJ) kynnti í dag nýju ACJ TwoTwenty þotuna sem smíðuð er á grunni Airbus A220 þotunnar
Airbus Corporate Jet, einkaþotudeild Airbus, kynnti í dag nýja einkaþotuútgáfu af A220 sem kallast ACJ TwoTwenty og um leið var tilkynnt að fyrirtækið hafi borist pöntun í sex slíkar þotur.
Airbus segir að um nýja einkaþotu sé að ræða fyrir viðskiptaaðila í hópi
stærri viðskiptaeinkaþotna sem kemur með sérsniðnu farþegarými og miklu flugdrægi.
„Þessi þota tekur jafnmikið pláss á flugvöllum og þarf jafnstór stæði og minni
einkaþotur og getur hafið sig á loft frá sambærilegum flugbrautum og líkt og litlar einkaþotur þurfa að nota“, segir Benoit Defforge, forstjóri Airbus Corporate Jet.
Rekstarkostnaður við ACJ TwoTwenty einkaþotuna er sagður vera
1/3 af kostnaði við sambærilegar einkaþotur og sé hún mun hljóðlátari
fyrir farþega, mun umhverfisvænni og einnig sparneytnari.
ACJ TwoTwenty hefur flugdrægi upp á 5.650 mílur (nm) eða 10.500 kílómetra
og getur því flogið yfir 12 tíma án þess að taka eldsneyti.
Airbus segir í tilkynningu að yfir 200 Airbus-einkaþotur af öðrum tegundum séu
í notkun í heiminum í dag í öllum heimsálfum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.