flugfréttir
Búast ekki við að fljúga risaþotunni næstu tvö árin
Airbus A380 risaþota frá Qatar Airways
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, segist ekki eiga von á því að félagið eigi eftir að fljúga risaþotunni Airbus A380 næstu tvö árin.
Með því er Al Baker svartsýnni á endurkomu risaþotunnar en hann tók fram í júní í sumar að mögulega myndi Qatar
Airways byrja að fljúga risaþotunni aftur um mitt árið 2021 en félagið gerir ráð fyrir að byrja að taka fyrstu risaþoturnar
úr flotanum árið 2024 þegar fyrsta A380 þotan nær 10 ára aldri.
Al Baker gerir ráð fyrir að félagið muni miða við endurkomu risaþotunnar þegar farþegafjöldinn er komin upp í sömu tölur
og var árið 2019 áður en kórónaveirufaraldurinn skall á.
Frekar sjaldgæft er að sjá Airbus A380 risaþotur á flugi í dag en Al Baker segir að það sé mjög „heimskulegt“ af flugfélögum
að reyna að halda úti áætlunarflugi með risaþotunni í dag eins og ástandið er.
Qatar Airways ætlar þess í stað að einblína á langflug með Dreamliner-þotunum og Airbus A350 breiðþotunni þar
sem sparnaðurinn með að fljúga þeim í stað A380 er gríðarlegur þrátt fyrir að verð á þotueldsneyti hafi lækkað töluvert
í heimsfaraldrinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.