flugfréttir

Delta í viðræðum við Boeing vegna 737 MAX

23. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:55

Boeing 737 MAX þotur sem smíðaðar hafa verið fyrir American Airlines, United Airlines og Southwest Airlines

Delta Air Lines á nú í viðræðum við Boeing um mögulega pöntun í Boeing 737 MAX þoturnar en Ed Bastian, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að Delta sé að spá meðal annars í þeim óseldum 737 MAX þotum sem framleiddar hafa verið.

Delta Air Lines hefur í dag yfir 200 Boeing 737 þotur í flotanum sem eru af gerðinni Boeing 737-800 og Boeing 737-900ER en að öðru leyti þá á félagið von á 100 þotum frá Airbus af gerðinni A321neo og yfir fimmtíu þotum af gerðinni Airbus A220.

„Við erum að ræða við Boeing um ýmsa hluti og þar á meðal vegna MAX vélanna. Ef það skapast eitthvað tækifæri þar sem okkur býðst að kaupa MAX þá munum við ekki hika við það“, segir Ed Bastian.

Af þremur stærstu flugfélögum Bandaríkjanna þá er Delta Air Lines það eina sem hefur ekki pantað Boeing 737 MAX en American Airlines og United Airlines hafa til samans pantað 285 þotur og þá hefur Southwest Airlines pantað yfir 300 eintök.

Af þeim 450 Boeing 737 MAX þotum sem smíðaðar hafa verið þá er um fjórðungur af þeim án eiganda og um svokallaðar „white tails“ flugvélar að ræða sem flugfélög hafa hætt við og er því engin viðskiptavinur á bak við þær þotur eins og staðan er í dag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga