flugfréttir
Nýtt flugfélag á Kanarí hefur áætlunarflug í júní
- Canarian Airways mun tengja Kanaríeyjar við meginland Evrópu
Fyrsta þotan í flota Canarian Airways verður af gerðinni Airbus A319
Kanaríeyjar eru í þann mund að fara að eignast sitt eigið flugfélag sem mun sinna áætlunarflugi á milli eyjanna og meginlands Evrópu en hingað til hefur Kanarí aðeins haft flugfélag sem sinnir flugi á milli eyjanna.
Nýja flugfélagið heitir Canarian Airways og er það hópur fjárfesta og hóteleigenda á Kanaríeyjum
sem koma að stofnun flugfélagsins en óttast var að gjaldþrot flugfélagsins Thomas Cook myndi
hafa áhrif á flugsamgöngur til eyjanna sem yrði til þess að ferðamönnum myndi fækka í kjölfarið.
Að flugfélaginu standa 14 aðilar og fyrirtæki í ferðaþjónustunni á Tenerife, flugleigufyrirtækið
One Airways, sem mun leggja til eina Airbus A319 þotu sem félagið mun hefja flugrekstur
með, og samtök fyrirtækja í hótelrekstri á Tenerife, La Palma, La Gomera og El Hierro.
Fram kemur að Canarian Airways mun hefja áætlunarflug í júní í sumar og mun félagið
byrja á því að fljúga til Cardiff, Glasgow og Berlínar auk þess sem félagið stefnir á að fljúga
frá Tenerife til Madrídar, Bilbao, Barcelona og til Vigo á Spáni.
Fyrsta Airbus A319 þotan, sem félagið hefur tryggt sér, er níu ára gömul og var þotan fyrst í flota færeyska flugfélagsins Atlantic Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.