flugfréttir
Qantas ætlar að fljúga öllum risaþotunum aftur
Airbus A380 risaþotur Qantas í geymslu á Southern California Logistics flugvellinum í Kaliforníu í Bandaríkjunum
Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, segir að flugfélagið ástralska sé staðráðið í að fljúga öllum Airbus A380 risaþotunum aftur á nýjan leik eftir heimsfaraldurinn.
Mörg flugfélag hafa ekki séð neina framtíð í farþegaflugi með risaþotunum meira og telja að líftími Airbus A380 sé á enda í flota sínum að minnsta kosti í bili eða um nokkurt skeið.
Nokkur flugfélög hafa þó lýst því yfir að til standi að koma öllum risaþotunum
aftur í umferð þegar ástandið skánar í flugiðnaðinum og sjá fram á hagkvæma
nýtni á Airbus A380 eftir faraldurinn.
Qantas hefur tólf Airbus A380 risaþotur í flotanum og segir Joyce að hann
hafi fulla trú á því að allar vélarnar eigi eftir að fljúga aftur um leið
og áhrifin af COVID-19 fara að minnka.
Joyce segir að ef eftirspurnin kemur snöggt til baka gæti svo farið að
allar risaþoturnar tólf eigi eftir að verða komnar á loft innan þriggja til sex
mánaða.
„Við erum annars mjög heppin þar sem við höfum verið að leysa stærstu
þoturnar af hólmi með Boeing 787 og 787 er frábær flugvél. Hún getur
leyst af A380 og 747 með tilliti til flugdrægis og er einnig hagkvæmari“, segir Joyce.
Flestum Airbus A380 risaþotum Qantas hefur verið flogið í langtímageymslu í Mojave-eyðimörkinni í Bandaríkjunum en sex af þeim þotum hafa gengist undir endurnýjun á farþegarými þrátt fyrir að þær eru ekki í notkun eins og er.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.