flugfréttir
SAS stefnir á að hefja flug aftur til New York
Airbus A330 breiðþota SAS á Newark-Liberty flugvellinum í Bandaríkjunum
SAS (Skandinavian Airlines) hefur ákveðið að hefja áætlunarflug að nýju til New York í júlí eftir meira en 16 mánaða hlé en félagið mun byrja á því að fljúga til New York frá Osló.
Flugið milli Oslóar og New York hefst aftur þann 3. júlí og verður til að byrja með flogið tvisvar í viku
til Newark—Liberty flugvallarins á miðvikudögum og laugardögum og flogið til baka til Oslóar
á fimmtudögum og sunnudögum.
SAS segir að félagið muni sífellt fylgast með stöðu mála vegna heimsfaraldursins og bæta við tíðnina
um leið og eftirspurnin eykst.
SAS hætti að fljúga á milli Oslóar og New York þann 13. mars í fyrra og hefur félagið því ekki flogið
þessa leið í meira en ár.
Flugfélagið stefnir einnig á að hefja aftur flug til Chicago, Los Angeles, San Francisco og til Washington áður en langt um líður.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.