flugfréttir
Verksmiðjur Learjet verða að tækni- og þjónustumiðstöð
Learjet verksmiðjurnar í Wichita í Kansas í Bandaríkjunum
Kanadíski flugvélaframleiðandinn Bombardier ætlar að koma upp þjónustu- og tæknimiðstöð í borginni Wichita í Kansas þar sem áður voru verksmiðjur fyrir Learjet einkaþoturnar.
Það var í febrúar á þessu ári sem að Bombardier tilkynnti að til stæði að hætta framleiðslu á Learjet einkaþotunum
eftir 58 ára framleiðslu en frá árinu 1963 hafa yfir 3.000 Learjet einkaþotur verið framleiddar og afhentar
og eru yfir 2.000 þotur enn í noktun um allan heim.
Bombardier ætlar þess í stað að breyta verksmiðjunni í miðstöð fyrir þjónustu og viðhald fyrir þær einkaþotur sem fyrirtækið hefur framleitt og styrkja með því stöðu sína í Wichita.
Eftir að framleiðsla Learjet lýður undir lok mun Bombardier einblína á smíði og sölu á Global og Challenger
einkaþotunum en síðasta Learjet-einkaþotan verður afhent snemma á næsta ári.
Þrátt fyrir að Learjet framleiðslan sé enn í gangi hefur Bombardier hafist handa við að undirbúa
breytingar á verksmiðjunni og þá verða yfir 100 starfsmenn þjálfaðir í framleiðslu á öðrum flugvélategundum
en þeir hafa hingað til nær eingöngu starfað við smíðina á Learjet einkaþotunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.