flugfréttir
Condor pantar Airbus A330neo
Tölvugerð mynd af Airbus A330neo þotu í litum Condor
Þýska flugfélagið Condor hefur valið Airbus A330neo breiðþoturnar til þess að leysa af hólmi eldri Airbus 330 þotur.
Condor hefur lagt inn pöntun til Airbus í sjö breiðþotur af gerðinni Airbus A330neo og þar að auki
ætlar félagið að taka níu A330neo þotur á leigu og mun félagið því innleiða 16 breiðþotur af þessari
gerð á næstu árum.
Condor ætlar að nota Airbus A330neo þotur í áætlunarflugi til Ameríku, Karíbahafsins auk Asíu og
stendur til að Condor fái fyrstu þotuna afhenta haustið 2022.
Condor verður fyrsta þýska flugfélagið til þess að taka við Airbus A330neo en þau flugfélög sem hafa
nú þegar fengið A330neo afhenta eru Air Belgium, Azul Brazilian Airlines,
Kuwait Airways, Garuda Indonesia, Hi Fly, Lion Air, TAP Air Portugal, Uganda Airlines og fleiri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.