flugfréttir

London City ætlar að verða fyrsti kolefnalausi flugvöllur heims

18. maí 2022

|

Frétt skrifuð kl. 12:33

London City flugvöllurinn

London City flugvöllurinn stefnir á að verða fyrsti flugvöllurinn í heimi til að verða að öllu kolefnalaus og það fyrir árið 2030.

Stjórn flugvallarins kynnti nýlega áform sín um sjálfbæran umhverfisrekstur fyrir næstu 8 ár og hvaða skref verða tekin til að ná því markmiði en meðal annars ætlar flugvöllurinn eingöngu að nota umhverfisvæna orku fyrir allar byggingar á flugvellinum, rafvæða öll flugvallarökutæki auk þess sem enginn úrgangur mun fara frá flugvellinum er kemur að rusli sem ekki er endurvinnanlegur.

Þá er stefnan tekin á að flestar flugvélar sem fljúga til og frá vellinum munu nýtast við umhverfisvænni orkugjafa en sú þróun mun að miklu leiti eiga sér stað á næstu 20 árum samkvæmt spám er varðar þróun á öðrum orkugjöfum.

Flugvöllurinn hefur þegar hafi samvinnu við aðila og fyrirtæki í umverfisvænni orku til þess að meta hvernig flugvöllurinn getur boðið upp á aðstöðu og þann tækjakost sem til þarf svo hægt sé að skaffa umhverfisvænna eldsneyti í takt við þá tækniþróun sem á sér stað í þeim efnum.

London City er fimmti stærsti flugvöllurinn á London-svæðinu á eftir Heathrow, Gatwick, Stansted og Luton og fóru árið 2017 um 4.5 milljónir farþega um völlinn en árið 2019 fjölgaði þeim um hálfa milljón er farþegafjöldinn fór upp í 5 milljónir.

Átta flugfélög fljúga um flugvöllinn í dag í reglubundnu áætlunarflugi en þau flugfélög eru British Airways, Luxair, ITA Airways, KLM Royal Dutch Airlines, Loganair, LOT Polish Airlines, Lufthansa og SWISS International Air Lines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga