flugfréttir
Asiana Airlines dustar rykið af risaþotunum
Airbus A380 risaþota frá Asiana Airlines
Suður-kóreska flugfélagið Asiana Airlines hefur ákveðið að dusta rykið af risaþotunum Airbus A380 þar sem að eftirspurn eftir flugi hefur tekið við sér að nýju eftir heimsfaraldurinn.
Asiana Airlines segir að til að byrja með verði risaþoturnar teknar í notkun á þeim flugleiðum
þar sem eftirspurnin er mest sem er áætlunarflug frá Seoul til Los Angeles og til Bangkok.
Flugfélagið mun nota Airbus A380 þrisvar í viku til Los Angeles frá og með 23. júlí næstkomandi
og daglega til Bangkok frá og með 25. júní.
Hingað til hefur Asiana Airlines flogið til Bangkok með Airbus A330 breiðþotum og með A350
breiðþotum til Los Angeles en risaþotan A380 hefur allt að 180 fleiri sæti en hinar
flugvélategundirnar tvær.
Asiana Airlines hefur sex Airbus A380 risaþotur í flota sínum en flugfélagið tilkynni í október í fyrra að til stæði að hætta með risaþoturnar árið 2026.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.