flugfréttir

Afhendingar á Boeing 787 hefjast á ný á næstu dögum

- 21 mánaðar hlé á afhendingum senn á enda

9. ágúst 2022

|

Frétt skrifuð kl. 13:19

Dreamliner-þotur í lokasamsetningu hjá Boeing í Everett

Afhendingar á Dreamliner-þotunum geta hafist að nýju hjá Boeing að sögn bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sem gerir ráð fyrir að hægt verð að afhenda þær fyrstu á næstu dögum eftir næstum tveggja ára hlé.

„Boeing hefur lokið við að gera viðeigandi breytingar varðandi Boeing 787 þotuna sem uppfyllir allar kröfur og staðla“, segir í yfirlýsingu sem FAA gaf frá sér í gær en flugmálayfirvöld munu fara yfir og skoða hverja einustu Dreamliner-þotu sem afhent verður.

Um 21 mánuður er liðinn frá því að Boeing afhenti nýja Dreamliner-þotu en ástæðan er vegna ýmissa annmarka og galla sem uppgötvuðust í framleiðslu og þá aðallega eftir að í ljós komu miklar rifur á milli eininga í skrokk vélanna.

Röð ýmissa atvika varð til þess að afhendingar voru stöðvaðar árið 2020 og endaði málið inni á borði hjá flugmálayfirvöldum vestanhafs sem settu strangari reglugerðir á eftirlitsmál og þá aðallega í skugga gagnrýni sem FAA fékk á sig vegna vandamála með Boeing 737 MAX þoturnar.

David Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, tilkynnti fjárfestum í lok júlí að það væri spursmál um daga hvenær afhendingar gætu hafist aftur á Dreamliner-þotunum en Boeing hefur ekki tjáð sig um málið frá því FAA gaf til kynna í gær að afhendingar gætu hafist mjög fljótlega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga