flugfréttir
Þýska ríkið selur allan hlut sinn í Lufthansa Group
Þýska ríkið hefur náð að selja allan hlut sinn í Lufthansa Group
Þýska ríkið hefur selt allan hlut sinn í Lufthansa Group en ríkisstjórn landsins keypti 20 prósenta hlut í félaginu í júní árið 2020 til þess að tryggja rekstur Lufthansa á tímum heimsfaraldursins.
Með kaupunum veittu þýsk stjórnvöld leyfi til þess að verja 9 milljarða evra úr efnahagsjöfnunarsjóði ríkisins
til Lufthansa Group.
Í nóvember í fyrra náði Lufthansa Group að endurgreiða þann hluta til fulls er snéri að
aðkomu sjóðsins og gat þýska ríkið því haldið áfram með sölu á sínum hluta í félaginu.
Efnahagsjöfnunarsjóðurinn tilkynnti þann 13. september að sjóðurinn hefði selt sinn hluta til erlendra fjárfesta
en fram kemur að aðrir fjárfestar og hluthafar í Lufthansa Group hafi ekki verið látnir vita af sölunni.
Einhverjir hluthafar gruna að einhver hluti hafi verið seldur til Klaus-Michael Kuehne sem er einn af ríkustu
mönnum Þýskalands en Kuehne varð þann 6. júlí sl. einn stærsti hluthafi Lufthansa Group eftir að eignarhlutur
hans fór úr 10% upp í 15 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.