flugfréttir

80 prósent lágmarksnýting flugvalla á ný fyrir árið 2023

5. október 2022

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

Þegar að heimsfaraldurinn skall á árið 2020 var reglugerð um 80% lágmarksnýtingu lækkuð niður í 50 prósent

Þing Evrópusambandsins hefur kosið um að gera breytingu á núverandi reglugerð er varðar lendingarpláss á evrópskum flugvöllum og þurfa flugfélög í vetur að ná lágmarksnýtingu upp á 75 prósent til þess að tryggja sér áframhaldandi notkun á flugvöllum fyrir árið 2023.

Þegar að heimsfaraldurinn skall á árið 2020 var reglugerð um 80% lágmarksnýtingu lækkuð niður í 50 prósent en í vor var reglugerðin uppfærð í lágmarkshlutfallið 64/36 og aftur í sumar upp í 75/25.

Til stendur að lágmarksnýtingin verði komin aftur í 80% fyrir sumarið 2023 en flugfélög á borð við Wizz Air hafa óskað eftir því að breytingin verði gerð fyrr en áætlað er í dag en Wizz Air hefur haldið áfram að vaxa ört þrátt fyrir þau áhrif sem heimsfaraldurinn hafði.

Undantekning er þó gerð um reglu um lágmarksnýtingu á lendingarplássum vegna utanaðkomandi þátta á borð við náttúruhamfara eða áhrifa af pólitískum deilum sem veldur röskun á flugsamgöngur og yrði því tekið tillit til þeirra þátta.

Þau flugfélög sem ná ekki að nýta sér lágmarkshlutfallið geta átt þá hættu á að missa pláss á viðkomandi flugvelli sem þýðir að einhver pláss verða afhent til annarra flugfélaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga