flugfréttir

Vilja hækka starfslokaaldur flugmanna upp í 67 ár

- Lausn til skemmri tíma við flugmannaskorti en langtímalausnin er fleiri flugmenn

22. mars 2023

|

Frétt skrifuð kl. 21:06

Hópur sjö öldungardeildarþingmanna hefur unnið að tillögu að breytingu á reglugerð um starfslokaaldur atvinnuflugmanna

Bandaríska öldungardeildarþingið lagði í gær fram tillögu sem tekin var fyrir á bandaríska þinginu þar sem farið er fram á að starfslokaaldur atvinnuflugmanna vestanhafs verði hækkaður í 67 ár en í dag er hann 65 ár eins og í flestum öðrum löndum.

Hópur sjö öldungardeildarþingmanna hefur unnið að tillögu að breytingu að þessari reglugerð en með henni er reynt að stemma stigu við þeim alvarlega flugmannaskorti sem blasir við í Bandaríkjunum og er þegar farinn að vera alvarlegur meðal minni flugfélaga sem fljúga svokallað svæðisflug (regional flights).

Flugiðnaðurinn vestanhafs fagnar tillögunni og þar á meðal RAA, félags svæðisflugfélaga (Regional Airlines Association), sem tekur fram að verulega væri hægt að draga úr skorti á flugmönnum ef reyndir flugmenn mættu halda áfram að fljúga eftir 65 ára aldur séu þeir við fulla heilsu.

„Á meðan að langtímalausnin er að einblína á þjálfun á fleiri flugmönnum og aðgengi að flugiðnaðinum og flugtengdum störfum þá þarf að grípa til aðgerða til skemmri tíma til að lágmarka hnignun í fluginu“, segir í yfirlýsingu frá RAA.

Starfslokaaldur í fluginu í Bandaríkjunum hefur ekki verið hækkaður síðan árið 2007

Fram kemur í tillögunni að flugmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, yrðu myndu fara í ítarlega læknisskoðun á 6 mánaða fresti fram til 67 ára aldurs.

Talið er að það vanti um það bil 8.000 flugmenn til starfa hjá bandarískum svæðisflugfélögum (regional airlines) þar sem margir flugmenn taka sín fyrstu skref áður en þeir fá störf hjá stóru flugfélögunum.

Vilja einnig láta afnema 1.500 flugtíma reglugerðina

Gert er ráð fyrir að um 3.000 flugmenn hafi látið af störfum í heimsfaraldrinum vestanhafs og þá er von á að 12.000 flugmenn til viðbótar láti af störfum sökum aldurs á næstu 5 árum.

Þá telja bandarísk flugfélög að enn mætti gera betur með því að afnema 1.500 flugtíma regluna sem kveður á um að nýr flugmaður, sem ætlar að sækja um starf hjá bandarísku flugfélagi, verði að hafa að minnsta kosti 1.500 flugtíma að baki.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að öldunardeildarþingið kemur með tillögu um að hækka starfslokaaldur upp í 67 ár en sú tillaga var einnig lögð fyrir þingið í júlí í fyrra.

Starfslokaaldur í Bandaríkjunum hefur ekki verið hækkaður í 16 ár en þá var hann hækkaður úr 60 árum upp í 65 ár árið 2007.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga