flugfréttir

Flugvöllurinn í Beirút í tveimur tímabeltum í einu

- Tvær mismunandi klukkur á flugvellinum ruglar farþega í ríminu

27. mars 2023

|

Frétt skrifuð kl. 14:37

Klukkan 14:30 í dag að íslenskum tíma var klukkan á flugvellinum í Beirút 16:30 og líka 17:30

Ekki ber öllum klukkum saman um hvað tímanum líður á flugvellinum í Beirút í Líbanon sem sýnir mismunandi klukkur þessa stundina.

Flugfarþegum sem eiga leið um Beirút er ráðlagt að vera vissir um hvenær flugið er á áætlun þar sem flugvöllurinn sýnir tvær mismunandi klukkur á upplýsingaskjáum.

Þetta undarlega vandamál, sem er ekki bara að finna á flugvellinum heldur allstaðar í Líbanon þessa daganna, má rekja til ósamkomulags milli mismunandi trúarhópa varðandi sumartímann sem breyttist í gær, 26. mars.

Ruglingurinn er sprottinn upp frá yfirlýsingu forsetisráðherra landsins, Najib Mikati, sem tilkynnti þremur dögum áður en breytt var yfir í sumartímann að til stæði að bíða með að breyta klukkunni í Líbanon þangað til 21. apríl.

Ekki var nein ástæða gefin fyrir biðinni á sumartímanum en talið er að verið sé að koma til móts við múslima svo þeir geti rofið föstu einni klukkustund fyrr vegna Ramadan.

Þessi ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd af mörgum leiðtogum og ráðamönnum í Líbanon sem spyrja sig út í hvort ákvörðun sem þessi sé lögleg og hafa farið með málið fyrir líbanska þingið.

Eins og staðan er núna er flugvöllurinn í Beirút í tveimur tímabeltum og hefur flugfélagið Middle East Airlines (MEA) auglýst flugáætlun sína einni klukkustund á undan og verður því breytt þann 21. apríl.

Einhverjir farþegar hafa dreift myndum og myndskeiðum af upplýsingaskjám á flugvellinum í Beirút þar sem sjá má tvær mismunandi klukkur sem veldur mörgum ruglingi.

Myndband af Twitter:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga