flugfréttir
Airbus og Qantas þróa lífrænt eldsneyti úr sykri
Hreinsunarstöðin, þar sem sykri verður breytt í flugvélaeldsneyti, er staðsett í Queensland-ríki í Ástralíu
Airbus og ástralska flugfélagið Qantas hafa fest kaup á eldsneytishreinsunarstöð sem notuð verður til þess að breyta sykri yfir í lífrænt eldsneyti.
Í hreinsunarstöðunni verða afgangsafurður úr landbúnaði á borð við sykurreyr breytt í þotueldsneyti
en hreinsunarstöðin er staðsett í Queensland-ríki í Ástralíu og hefur hún verið þróuð og sett á fót
af fyrirtækinu Jet Zero Australia í samstarfi við eldsneytistæknifyrirtækið LanzaJet.
Airbus og Qantas munu fjárfesta fyrir um 1.3 milljónir dala hver fyrir sig sem jafngildir 177 milljónum
á hvorn aðila í rannsóknarvinnu og þróun á fyrsta stigi framleiðslunnar.
Hreinsunarstöðin verður tekin í gagnið á næsta ári og þegar hún verður komin í notkun mun hún
afkasta framleiðslu á um 100 milljónum lítrum af sjálfbæru flugvélaeldsneyti á ári.
Qantas verður fyrst um sinn stærsti einstaki viðskiptavinurinn og með sjálfbæru eldsneyti mun flugfélagið
ná að draga úr kolefnalosun og koma til móts við markmið og stefnu ástralskra stjórnvalda í loftlagsmálum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.