flugfréttir
Fyrri lendingarkeppnin sumarsins fór fram á Tungubökkum
Frá vinstri: Birgir Steinar, Birgir Örn og Valdimar Einarsson
Fyrri lendingarkeppni sumarsins á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar fór fram í gær á Tungubökkum.
Upphaflega stóð til að halda heppnina sl. fimmtudag ásamt hinu vikulega fimmtudagskaffi sem haldið er á hverjum
fimmtudegi á sumrin en vegna þoku þurfti að aflýsa keppninni á síðustu stundu.
Blásið var aftur til keppni í gær sem hófst kl. 16:00 og voru alls 12 flugmenn sem tóku þátt í fjórum hollum eða þremur
flugmönnum fleiri en kepptu í fyrra.
Keppnin var eilítið
meira krefjandi í gær en gengur og gerist þar sem ágætis vinstrengur var og það þvert á braut en veður var að öðru leyti hið þokkalegasta.
Sigurjón Valsson, formaður Flugklúbbs Mosfellsbæjar, fer yfir leikreglurnar fyrir keppnina
Í hverri atrennu er keppt í fjórum flokkum en í fyrsta hring mega flugmenn nota frjálsa aðferð og miðast keppnin við að snerta marklínu og fá flugmenn á sig refsistig eftir því hversu langt frá marklínunni þeir snerta með aðalhjólin.
Í öðrum hring gildir reglan að draga af allt afl og svo þyngist róðurinn í þriðja hring þegar bæði er farið fram á að koma inn til lendingar án afls og án flapa. Í fjórða hring er keppt um að koma yfir línu sem dregin er yfir brautina fyrir framan marklínuna.
Jamil Allansson kemur að marklínunni á TF-FET
Birgir Örn Sigurjónsson var sigurvegari keppninnar og gerði sig lítið fyrir og tók 1. sætið en þetta er í fyrsta sinn sem hann
tekur þátt í lendingarkeppni og flaug hann TF-TBO sem er af gerðinni Cessna Bird Dog.
Í 2. sæti var Birgir Steinar Birgisson sem keppti einnig á TF-TBO og í 3. sæti var Valdimar Einarsson á TF-PAC (Piper PA-18 Super Cub)
Seinni lendingarkeppni sumarsins á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar er áætluð í ágúst og hafa flugmenn því að minnsta kosti 8-10 vikur til þess að æfa sig þangað til.
Úrslit keppninnar:
1. sæti: Birgir Örn TF-TBO
2. sæti: Birgir Steinar TF-TBO
3. sæti: Valdimar TF-PAC
4. sæti: Sigurjón TF-PAC
5. sæti: Gunnar TF-TBO
6. sæti: Daníel TF-RJC
7. sæti: Svanur Ingi TF-FFC
8. sæti: Pétur Jökull TF-RJC
9. sæti: Jamil TF-FET
10. sæti: Hjörtur TF-FIM
11. sæti: Ómar TF-POU
12. sæti: Dagur TF-RJC
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.