flugfréttir
Semja við flugfreyjur um allt að 40 prósenta kauphækkun
Airbus A320 þota frá Allegiant Air
Bandaríska flugfélagið Allegiant Air hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélag sem fer fyrir flugfreyjum félagsins um umtalsverða launahækkun sem mun gera flugfreyjur félagsins þær hæstlaunuðustu meðal lágfargjaldafélaga vestanhafs.
Verkalýðsfélagið The Transport Workers Union og Allegiant Air lýstu því yfir þann
9. júní sl. að
samkomulag hefði náðst um 15.5 til 40 prósenta launahækkun sem tekur í gildi þann 1. júlí
næstkomandi og gildir samningurinn til næstu 5 ára.
Samningurinn nær til tæplega 1.900 flugfreyja og flugþjóna en samningurinn felur einnig í sér
aukin starfslokafríðindi, aukið veikindaorlof, bónusgreiðslur, aukin orlofslaun og fleiri frídaga, fleiri
veikindadaga á ári auk sveigjanlegri vinnutíma.
Fram kemur að tímakaup flugfreyja og flugþjóna hjá félaginu muni á 5 ára samningstímanum
aukast frá 49% upp í 107 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.