flugfréttir

Flugflotinn í heiminum mun næstum tvöfaldast árið 2042

- Gera ráð fyrir að afhentar verði yfir 46 þúsund flugvélar á næstu 20 árum

13. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 14:05

Í dag telur flugfloti flugfélaganna í heiminum um 23 þúsund flugvélar

Írska flugvélaleigan Avolon spáir því að flugfloti allra flugfélaga í heiminum eigi eftir að næstum því tvöfaldast á næstu 20 árum eða árið 2042.

Í nýlegri spá sem Avolon gaf frá sér kemur fram að líklega eigi flugfloti meðal flugfélaga í farþegaflugi eftir að stækka um 94% upp í 46.880 flugvélar.

Flugvélaleigan gerir ráð fyrir að fjölgunin muni samanstanda af 44.300 nýjum flugvélum sem verða afhentar á næstu tveimur áratugum að andvirði 4 þúsund milljarða Bandaríkjadala en á móti munu flugfélögin afskrifa og taka úr umferð 21.600 flugvélar.

Gert er ráð fyrir að flugfarþegum eigi eftir að halda áfram að fjölga um 3.5% á hverju ári en heildarfjölgunin á næstu 20 árum mun þó ekki fara yfir 5-6 prósent á ári vegna skorts hjá birgjum og hækkunar á flugfargjöldum sem gætu hindrað aukningu farþega.

Avolon gerir ráð fyrir að gríðarlegt fé eigi eftir að fara í innviði til að koma til móts við þessa aukningu auk þess sem flugiðnaðurinn eigi eftir að fjárfesta miklum fjármunum í þróun á umhverfisvænni flugkosti og sjálfbæru eldsneyti.

Mesta aukningin í farþegaflugi mun eiga sér stað á Indlandi sem er í fyrsta sæti með 4.4% aukningu og þá er Kína næst á eftir í 2. sæti og önnur lönd í Asíu í 3. sæti.

Þá er gert ráð fyrir að meiri aukning verði í afhendingum á minni farþegaflugvélum með einum gangi þar sem slíkar flugvélar eru komnar með enn lengra flugdrægi og geta flogið heimsálfa á milli í auknu mæli. Talið er að 112% aukning verði á afhendingum á slíkum þotum og 97% aukning verður á afhendingum á breiðþotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga