flugfréttir
Tim Clark ítrekar við Airbus að íhuga neo-útgáfu af A380
- Vill sjá endurbættari risaþotu með sparneytnari hreyflum
![](http://www.alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1448061623.jpg)
Tim Clark, forstjóri Emirates
Sir Tim Clark, forstjóri Emirates, hvetur nú Airbus enn og aftur til þess að huga að því að hefja þróun á endurbættari útgáfu af risaþotunni Airbus A380 og setja á teikniborðið A380neo.
Clark hélt ávarp á ráðstefnunni Paris Air Forum í dag og benti hann á meðal
annars að þeir hreyflar sem knýja áfram risaþoturnar í dag, sem eru GP7200 frá
Engine Alliance og Trent 900 frá Rolls-Royce, voru hannaðir rétt fyrir aldamótin.
Benti Clark á að ný tegund af sparneytnari hreyflum fyrir Airbus A380 gæti
gert það að verkum að risaþotan yrði 25% sparneytnari með mun lægri
kolefnaútblástur.
Clark segir að risaþotan sé ennþá gríðarlega vinsæl meðal farþega Emirates
og segir hann að í seinustu viku hafi Emirates verið með 87 risaþotur
í notkun af þeim 116 sem eru í flotanum og hafi sætanýtingin verið 82 prósent.
Ekki væri ný tegund hreyfla það eina sem þyrfti að huga að er kæmi að A380neo
en Clark bendir á að einhverjar loftflæðislegar hönnunarbreytingar þyrfti
að framkvæma á risaþotunni.
Þrátt fyrir mikinn áhuga Clark fyrir að sjá endurbættari A380 risaþotu þá
talar Clark fyrir daufum eyrum meðal stjórnenda Airbus sem hafa lítinn áhuga
á að dusta rykið af teikningunum auk þess sem framleiðslu risaþotunnar leið
undir lok í miðjum heimsfaraldrinum.
„Þeir hlægja alltaf af mér en ég er einungis að segja það sem ég tel vera skynsamlegast“, segir Clark.
![](http://www.alltumflug.is/banners/samgongustofa_brautaratrodningur_0706_undirfrett.jpg)
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1333070623.jpg)
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1409070523.jpg)
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1405070423.jpg)
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1331070423.jpg)
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1902062823.jpg)
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1317062823.jpg)
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_1257062823.jpg)
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
![](http://alltumflug.is/admin/uploadedfiles/news_0848062623.jpg)
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.