flugfréttir

Tim Clark ítrekar við Airbus að íhuga neo-útgáfu af A380

- Vill sjá endurbættari risaþotu með sparneytnari hreyflum

16. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 14:52

Tim Clark, forstjóri Emirates

Sir Tim Clark, forstjóri Emirates, hvetur nú Airbus enn og aftur til þess að huga að því að hefja þróun á endurbættari útgáfu af risaþotunni Airbus A380 og setja á teikniborðið A380neo.

Clark hélt ávarp á ráðstefnunni Paris Air Forum í dag og benti hann á meðal annars að þeir hreyflar sem knýja áfram risaþoturnar í dag, sem eru GP7200 frá Engine Alliance og Trent 900 frá Rolls-Royce, voru hannaðir rétt fyrir aldamótin.

Benti Clark á að ný tegund af sparneytnari hreyflum fyrir Airbus A380 gæti gert það að verkum að risaþotan yrði 25% sparneytnari með mun lægri kolefnaútblástur.

Clark segir að risaþotan sé ennþá gríðarlega vinsæl meðal farþega Emirates og segir hann að í seinustu viku hafi Emirates verið með 87 risaþotur í notkun af þeim 116 sem eru í flotanum og hafi sætanýtingin verið 82 prósent.

Ekki væri ný tegund hreyfla það eina sem þyrfti að huga að er kæmi að A380neo en Clark bendir á að einhverjar loftflæðislegar hönnunarbreytingar þyrfti að framkvæma á risaþotunni.

Þrátt fyrir mikinn áhuga Clark fyrir að sjá endurbættari A380 risaþotu þá talar Clark fyrir daufum eyrum meðal stjórnenda Airbus sem hafa lítinn áhuga á að dusta rykið af teikningunum auk þess sem framleiðslu risaþotunnar leið undir lok í miðjum heimsfaraldrinum.

„Þeir hlægja alltaf af mér en ég er einungis að segja það sem ég tel vera skynsamlegast“, segir Clark.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga