flugfréttir
Segja af sér úr stjórninni eftir 100 milljarða taprekstur
Dreamliner-þota frá Bamboo Airways á flugvellinum í Frankfurt í Þýskalandi
Fjórir af fimm stjórnarmeðlimum víetnamska flugfélagsins Bamboo Airways hafa sagt af sér eftir að neikvæð afkoma flugfélagsins sló met í sögu félagsins.
Taprekstur Bamboo Airways á 12 mánaða tímabili til 31. desember 2022 nam 102 milljörðum
króna en formleg afkoma félagsins verður kynnt þann 21. júní nk. og verður
þá endurráðið í stjórn félagsins.
Þá stendur til að skipa þrjá meðlimi í sérstaka yfirstjórn sem mun fylgjast með
starfsemi stjórnarmeðlima félagsins til þess að koma í veg fyrir að afkoman haldi
áfram á sömu braut.
Fram kemur að taprekstur félagsins megi rekja til dræmrar eftirspurnar í farþegaflugi
hjá félaginu í norðausturhluta Asíu auk hás eldsneytisverðs vegna innrásarinnar
í Úkraínu sem hefur áhrif á rekstur félagsins.
Þá varð áttatíuföld aukning á umsýslukostnaði hjá félaginu árið 2022 sem hækkaði
úr 918 milljónum króna upp í 745 milljarða króna.
Bamboo Airways er einkarekið flugfélag sem var stofnað árið 2017 og hóf það starfsemi
sína árið 2019. Flugfélagið flýgur til 33 áfangstaða í ellefu löndum og hefur 30
flugvélar í flotanum frá Boeing, Airbus og Embraer.
Þrátt fyrir hundrað milljarða króna taprekstur þá segir Bamboo Airways að það stefnir
á 10% aukningu í umsvifum í rekstri á þessu ári og ætlar félagið að ná því takmarki með því
að auka tíðni á helstu flugleiðum auk þess sem byrjað verður að fljúga til nýrra
áfangastaða og þá stendur til að bæta við sex flugvélum í flugflotann á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.