flugfréttir

Segja af sér úr stjórninni eftir 100 milljarða taprekstur

19. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 14:22

Dreamliner-þota frá Bamboo Airways á flugvellinum í Frankfurt í Þýskalandi

Fjórir af fimm stjórnarmeðlimum víetnamska flugfélagsins Bamboo Airways hafa sagt af sér eftir að neikvæð afkoma flugfélagsins sló met í sögu félagsins.

Taprekstur Bamboo Airways á 12 mánaða tímabili til 31. desember 2022 nam 102 milljörðum króna en formleg afkoma félagsins verður kynnt þann 21. júní nk. og verður þá endurráðið í stjórn félagsins.

Þá stendur til að skipa þrjá meðlimi í sérstaka yfirstjórn sem mun fylgjast með starfsemi stjórnarmeðlima félagsins til þess að koma í veg fyrir að afkoman haldi áfram á sömu braut.

Fram kemur að taprekstur félagsins megi rekja til dræmrar eftirspurnar í farþegaflugi hjá félaginu í norðausturhluta Asíu auk hás eldsneytisverðs vegna innrásarinnar í Úkraínu sem hefur áhrif á rekstur félagsins.

Þá varð áttatíuföld aukning á umsýslukostnaði hjá félaginu árið 2022 sem hækkaði úr 918 milljónum króna upp í 745 milljarða króna.

Bamboo Airways er einkarekið flugfélag sem var stofnað árið 2017 og hóf það starfsemi sína árið 2019. Flugfélagið flýgur til 33 áfangstaða í ellefu löndum og hefur 30 flugvélar í flotanum frá Boeing, Airbus og Embraer.

Þrátt fyrir hundrað milljarða króna taprekstur þá segir Bamboo Airways að það stefnir á 10% aukningu í umsvifum í rekstri á þessu ári og ætlar félagið að ná því takmarki með því að auka tíðni á helstu flugleiðum auk þess sem byrjað verður að fljúga til nýrra áfangastaða og þá stendur til að bæta við sex flugvélum í flugflotann á næstunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga