flugfréttir

Stefna á aukna markaðsherferð með C919 og ARJ21 þoturnar

- COMAC kynnir þoturnar tvær á Paris Air Show auk CR929 breiðþotuna

19. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 15:51

Flugvélalíkan af ARJ21 þotunni frá COMAC

Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC ætlar sér að hefja öfluga markaðsherferð vegna þeirra tveggja farþegaflugvéla sem framleiðandinn hefur komið með á markað sem eru þoturnar ARJ21 og C919.

Sölu- og markaðsherferðir COMAC hafa að mestu legið í dvala vegna heimsfaraldursins en nú ætlar framleiðandinn að setja í næsta gír og kynna þoturnar vel og rækilega og hefst herferðin með því að hafa þær til sýnis á flugsýninginni í París sem hófst í dag og stendur til að kynna þær fyrir mögulegum viðskiptavinum.

Að auki ætlar COMAC að kynna fyrstu breiðþotu fyrirtækisins sem stendur til að framleiða sem er þotan CR929 sem verður smíðuð í samvinnu við rússneska flugvélaframleiðandann United Aircraft.

Aðeins eru þrjár vikur síðan að C919 þotan flaug sitt fyrsta farþegaflug en það var áætlunarflug hjá China Eastern Airlines sem flaug þotunni í fyrsa sinn með farþega þann 28. maí síðastliðinn.

COMAC hefur í dag fengið pantanir í yfir 1.000 eintök af C919 og 775 eintök af ARJ21 þotunni en nú þegar eru yfir 100 þotur af þeirri gerð að finna í flota þriggja flugfélaga í Kína sem eru China Eastern Airlines, China Southern Airlines og Chengdu Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga