flugfréttir

Blöskrar hvað nýir þotuhreyflar hafa stuttan líftíma

- Segir vandamál með skort á varahlutum gjörsamlega óviðundandi

21. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 12:44

Willie Walsh, yfirmaður Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA)

Willie Walsh, formaður Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA), segist undrandi yfir þeim vandamálum er varðar nýjustu þotuhreyfla í heiminum í dag og líftími þeirra sem hann segir að sá sá stysti sem hann hefur orðið vitni að frá því hann hóf sinn feril í flugbransanum.

Walsh hélt ræðu á flugsýningunni í París í víkunni þar sem hann tók fram að mörg flugfélög eru að verða fyrir barðinu á ýmsum vandamálum er varðar líftíma nýjustu kynslóða af hreyflum og þá lýsir hann furðu sinni yfir þeim seinagangi er kemur að skorti á varahlutum hjá birgjum.

„Það fylgir því mikil gremja að vera með flugvél og geta ekki flogið henni. Þetta er að ganga allt of langt. Það ríkir mikill pirringur meðal flugfélaga vegna seinkana hjá birgjum og það virðist ekki sjá fyrir endann á þessu vandamáli“, segir Walsh, sem segir þetta vera gjörsamlega óviðundandi.

Fram kemur að verst sé staðan hjá hreyflaframleiðandanum Pratt & Whitney sem framleiðir PW1500G hreyfilinn fyrir Airbus A220 þoturnar og tekur hann fram að flugfélagið Air Baltic hefur þurft að skipta 220 sinnum um hreyfla á þeim 40 þotum sem félagið hefur í flota sínum af þeirri gerð.

Þá segir Walsh vera mjög undrandi yfir því þegar forstjórar flugfélaganna tjá honum um hversu stuttan líftíma þessir nýju hreyflar hafa og dvelja þeir aðeins í stutta stund undir vængjum flugvélanna.

Tim Clark, forstjóri Emirates hefur meðal annars greint frá því hversu stutt þeir hafa getað notað sína hreyfla.

Walsh segir að hreyflaframleiðendur verði að taka ábyrgðina á sig í stað þess að skella skuldinni eingöngu á birgja og þá framleiðendur sem framleiða íhluti í þá.

Rob Watson, formaður Rolls-Royce, segir að hreyflaframleiðendur séu komnir að þolmörkum og eru að ná allri þeirri frammistöðu sem tæknin býður upp á er varðar afkastagetu og sparneytni og segir hann að það sé að bitna verulega á endingartíma hreyflanna.

Þrátt fyrir að Rolls-Royce sé ekki að uppskera sömu vandamál og aðrir framleiðendur þá hafa þeir einnig orðið varir við ótímabæra tæringu á íhlutum er kemur að Trent 1000 hreyflinum.

Watson segir sannfærður um að iðnaðurinn muni komast yfir þessi vandamál en það mun þó ekki gerast á einni nóttu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga