flugfréttir

Skipta út A321neo fyrir A321 vegna hitans í Abu Dhabi

- Vilja forðast mögulegt vandamál með PW1133G-JM hreyflana í hitanum

22. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 11:22

Airbus A321neo þota frá Wizz Air Abu Dhabi

Flugfélagið Wizz Air Abu Dhabi ætlar sér að skipta út flestum þeim Airbus A321neo þotum, sem félagið hefur, fyrir eldri þotur af gerðinni Airbus A321 til þess að komast hjá því að eiga á hættu að verða fyrir vandamáli sem upp gæti komið með PW1133G-JM Geared Turbofan (GTF) hreyflana frá Pratt & Whitney í heitu loftslagi.

„GTF hreyflarnir hafa undirliggjandi vanda er snýr að mjög heitu veðri og eru þeir viðkvæmir fyrir þeim hita sem ríkir í Miðausturlöndum. Þessvegna ætlum við að skipta út flestum A321neo þotunum fyrir Airbus A321“, segir József Várandi, framkvæmdarstjóri Wizz Air Abu Dhabi.

Flugfélagið hefur í dag átta Airbus A321neo þotur í flotanum og eina Airbus A321 þotu en til stendur að flotinn verði komin með 15 þotur í flotann á næstunni.

Ian O. Malin, fjármálastjóri flugfélagsins, bendir á að mögulega hefði Pratt & Whitney átt að framkvæma ítarlegri prófanir með hreyfilinn í heitu loftslagi.

Vandamálið sé viðunandi í Evrópu og annarsstaðar og mögulega sé Wizz Air Abu Dhabi eina flugfélagið í heiminum sem hefur ekki enn kyrrsett þotu með þessari hreyflategund vegna skorts á varahlutum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga