flugfréttir
Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum
- 1.200 færri flugumferðarstjórar á hverjum degi miðað við fyrir 10 árum síðan
Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna hefur miklar áhyggjur af skorti á flugumferðarstjórum í Bandaríkjunum
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að takast á við með viðunandi hætti til að fyrirbyggja að vandamálið bitni á flugöryggi.
Í skýrslunni, sem var gefin út þann 21. júní síðastliðinn, kemur farm að heimsfaraldurinn hefur
haft þau áhrif á stofnunina að ekki hefur náðst að manna lágmarksfjölda flugumferðarstjóra á nokkrum
starfsstöðvum í Bandaríkjunum sem hefur ollið seinkunum á áætlunarflugi auk þess sem flugfélög
hafa neyðst til þess að aflýsa flugi.
„Á meðan að Bandaríkin geta státað sig að einu öruggasta flugumferðakerfi í heiminum
þá hefur verið skortur á hæfum flugumferðarstjórum og eftirlitsmönnum í flugumferðarstjórnun
sem er áhættusamt fyrir iðnaðinn“, segir m.a. í skýrslunni.
Fram kemur að í mars árið 2022 voru 20 flugumferðarstjórnstöðvar af 26 í Bandaríkjunum
undirmannaðar þar sem 85% starfsmanna voru við störf af þeim fjölda sem telst viðunandi sem
þýðir að stór flugumferðarsvæði á borð við Miami, Dallas-Fort Worth, Atlanta og Chicago
höfðu ekki nægilega marga flugumferðarstjóra á vakt og voru þeir færri en ætlast er til samkvæmt
reglugerðum.
Vandamálið er enn við lýði en til að mynda þurftu flugfélög að aflýsa 40% af öllu áætlunarflugi
um LaGuardia-flugvöllinn í New York þann 26. júní sl. og 35% flugferða var aflýst
sama dag um Newark-Liberty flugvöllinn í New Jersey og 15 prósent af öllu flugi
um JFK-flugvöllinn var aflýst vegna skorts á flugumferðarstjórum.
NATCA, verkalýðsfélag flugumferðarstjóra í Bandaríkjunum, segir að á hverjum
degi sé um 1.200 færri flugumferðarstjórar á vakt í Bandaríkjunum samanborið við
árið 2013.
Rich Santa, yfirmaður NATCA, segir að miklir annmarkar séu hjá FAA þegar kemur
að ráðningarstefnu stofnunarinnar og sé ekki verið að ráða nógu marga flugumferðarstjóra
miðað við aukningu í áætlunarflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.