flugfréttir
Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli
- Verður 70 prósent umhverfisvænna en jarðefnaeldsneyti
Samningurinn felur einnig í sér uppsetningu á eldsneytisvinnslustöð og vottanir á eldsneytinu
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
Um er að ræða nýja tækni sem byggir á að vinna þotueldsneyti frá etanóli og
felur samningurinn einnig í sér uppsetningu á eldsneytisvinnslustöð fyrir verkefnið.
LanzaJet ætlar sér að vinna eldnseytið úr lágkolefnisetanóli sem er þurrkað í etýlen og síðan notað til að mynda lengri kolefniskeðjusameindir, þar sem hreinsunaraðferð gerir kleift að framleiða annaðhvort þotueldsneyti eða dísilolíu.
Airbus segir að með þessu ferli verði hægt að framleiða sjálfbært eldsneyti sem dregur úr losun
kolefna um 70% samanborið við jarðefnaeldsneyti.
„Við erum staðráðin í að fylgja stefnu okkar um sjálfbært flugvélaeldsneyti sem er mikilvæg aðgerð
til þess að draga úr losun koltvísýsings“, segir Julie Kitcher hjá Airbus.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.