flugfréttir
Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur
- Ganga frá leigu á fjórum þotum til viðbótar við flugvélaleigu
Bogi Nils Bogason, framkvæmdarstjóri Icelandair, innsiglar samningin við Wouter van Wersch, yfirmann Airbus
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
Samningurinn felur í sér staðfesta pöntun á þrettán A321XLR þotum með kauprétt á tólf þotum til viðbótar
af sömu gerð en að auki hefur Icelandair einnig gengið frá samning um leigu á fjórum Airbus A321XLR
þotum við flugvélaleiguna SMBC Aviation Capital.
Afhendingar á fyrstu þotunum frá Airbus hefjast árið 2029 en þær fyrstu munu þó koma í flotann árið 2025
og er þar um að ræða þær þotur sem teknar verða á leigu frá SMBC Aviation Capital.
Ekki kemur fram hvert kaupverðið er á þeim vélum sem verða
keyptar en fram kemur að verðið sé trúnaðarmál en unnið verður að fjármögnun á þotunum þegar nær dregur.
Icelandair, sem hefur í dag eingöngu þotur frá Boeing, hefur fengið átján Boeing 737 MAX þotur afhentar
og á félagið tví eingöngu eftir að fá tvær slíkar þotur til viðbótar frá Boeing.
Fjöldi Boeing 757 þotna í flota Icelandair eru í dag sautján og þá hefur félagið einnig þrjár Boeing 767 breiðþotur,
tvær Boeing 767 fraktþotur og tvær Boeing 757 fraktþotur og þá eru fimm De Havilland Canada Dash 8 flugvélar
í flota innanlandsflugsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.