flugfréttir

Karlfyrirsæta yfirbuguð af farþegum vegna óláta

27. september 2012

|

Frétt skrifuð kl. 14:23

Ash Durrani

Sjö farþegar um borð í flugvél frá United yfirbuguðu 26 ára gamlan leikara og karlfyrirsætu sem hafði gengið berserksgang og áreitt farþega eftir að hann hafði innbyrt of mikið af áfengi.

Vélin var komin um 45 mínútur áleiðis frá John Wayne-flugvallar í Kaliforníu eftir flugtak frá Chicago þegar farþeginn, Arash Durrani, fór að láta illum látum en m.a. greip hann í hár á konu sem sat við hlið hans og ætlaði að reyna kyssa hana.

Einnig hafði hann í hótunum við farþega en þegar börn um borð í vélinni voru farin að hræðast hegðun hans stóð einn farþegi upp ásamt sex öðrum sem tóku málin í sínar hendur og yfirbuguðu farþegann og notuðu m.a belti af buxum sínum til að binda hann niður.

Læknir sem var um borð náði að láta hann gleypa valíum til að róa hann niður og sagði að það hefði dugað en við og við þegar hann rankaði við sér reyndi hann að losa sig og hóf að láta ófriðlega á ný.

Vélin lenti loks um þremur klukkustundum síðar. Durrani, sem einnig gengur undir nafninu Ash, er leikari og hefur hann nýlokið við að leika í bíómynd sem á eftir að frumsýna en umboðsmaður hans, Sheila Di Marco, sagðist ekki hafa heyrt um hegðun hans um borð í vélinni.

Samkvæmt vefsíðunni IMDB.com er er Ash titlaður sem leikari og fyrirsæta og á hann einnig m.a. fatahönnunarfyrirtækið GROW Clothing.

Nona Pitts, kona sem sat við hlið hans sagði að hann hafi drukkið skuggalega mikið í vélinni og hafi reynt stanslaust við sig áður en hann greip í hár hennar og sagðist vilja kyssa hana.

"Flugfreyjan var að færa honum Jack Daniels hvað eftir annað og ég sagði við hana að hann ætti frekar að fá vatnsglas til að róa sig niður en hún hlustaði ekki á mig", segir Pitts.

Talsmaður FBI segir að leikarinn verði kærður á næstu dögum fyrir athæfi sitt.

Farþegi um borð í vélinni tók myndband upp á farsímann sinn þegar Durrani var yfirbugaður:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga