flugfréttir
Orðrómur: SAS næstum því gjaldþrota í gær
- Stjórn SAS mun funda í allan dag með sænska ríkinu
Orðrómur er um að Scandinavian Airlines (SAS) hafi verið nálægt því að hafa orðið gjaldþrota í gærkvöldi samkvæmt sænska fréttamiðlinum Expressen.se.
Heimildir eru fyrir því að ef SAS mun ekki ná að finna lausn á rekstrarvandanum í dag, 11. nóvember, séu líkur á að tugi þúsundir
farþega geti orðið strandaglópar víða um heim.
Trine Kromann-Mikkelsen, talsmaður SAS, sagði að stjórn félagsins muni ekki tjá sig um þessar sögusagnir en segir
jafnframt að SAS mun á morgun birta nýja rekstraráætlun.
"SAS á við mikla rekstrarerfiðleika að stríða en það er ólíklegt að félagið hafi verið nokkrum klukkutímum frá því að verða
gjaldþrota", segir Jacob Pedersen, markaðssérfræðingur hjá danska bankanum Sydbank.
SAS hefur í dag fundað stíft með sænsku ríkisstjórninni um stöðu SAS sem er sögð vera orðin mjög tæp en dönsk stjórnvöld
tilkynntu í síðustu viku að danska ríkið væri hætt í bili að setja fé inn í SAS.
Ulla Gröntvedt sem situr í stjórn SAS sagði í morgun að staðan væri mjög alvarleg og myndi framhaldið skýrast betur á morgun.
Malin Selander fjölmiðlafulltrúi SAS sagði í morgun í viðtali við Expressen að félagið myndi kynna nýja rekstraráætlun á mánudag
en vildi ekki svara spurningunni hvort að félagið væri að verða gjaldþrota.
Ríkisstjórnir Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar hafa allar farir fram á að Evrópusambandið samþykki risalán til SAS til að koma
rekstrinum á réttan kjöl.
SAS hefur verið rekið með tapi síðustu 5 ár og hefur samkeppni frá Norwegian Air Shuttle og öðrum lágfargjaldarfélögum gert
SAS mjög erfitt fyrir auk þess sem flugfloti félagsins er farin að eldast og hátt eldsneytisverð kemur sér félaginu mjög illa
þar sem margar vélarnar eru orðnar gamlar og eyða mun meira eldsneyti en yngri vélar.
Um 74 þúsund farþegar flugu með SAS á hverjum degi sem starfrækir 182 flugvélar sem fljúga til yfir 90 áfangastaða og
er félagið 8. stærsta flugfélag Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.