flugfréttir
Svona myndi þriðja flugbrautin líta út
- Fresturinn til að skila inn tillögum rennur út á föstudag
Svona myndi Heathrow-flugvöllur líta út með þriðju flugbrautinni til suðvesturs
Heathrow-flugvöllur hefur sent inn sínar hugmyndir af stækkun vallarins til nefndar sem mun taka allar tillögur um lausn við flugvallarvandanum á Bretlandi og fara yfir á næstunni.
Hér er tölvugerð mynd af einni tillögunni sem byggist á því að leggja þriðju flugbrautina suðvestur
af Heathrow-flugvelli en hinar tvær ganga út á að þriðja flugbrautin myndi liggja norður af Heathrow eða
norðvestur af flugvellinum.
Framkvæmdirnar við þriðju flugbrautin munu að öllum líkindum kosta frá 2,500 - 3,300 milljörðum króna
og munu um 10 þúsund heimili verða undir nýjum aðflugslínum að þeirri braut.
Allir flugvellir hafa frest til föstudagsins 19. júlí til að skila inn tillögum sínum til nefndarinnar.
Heathrow-flugvöllur segir að allar tillögurnar þrjár muni hafa áhrif á færri íbúa en flugvöllurinn gerir í dag. Einnig
er þessi lausn talin fljótlegri og mun ódýrari en að byggja nýjan flugvöll.
Smellið á myndina til að fá stóra útgáfu (3000 x 1689px)
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.