flugfréttir

Var vélinni flogið undir skugganum á annarri vél?

- Telur að malasíska vélin hafi flogið í skjóli undir vél Singapore Airlines

17. mars 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:01

Nú spyrja rannsóknaraðilar sig hvort að vélin hafi flogið undir skugganum á annari vél til að komast óséð gegnum lofthelgi annara landa

Þeir aðilar sem rannsaka hvarf malasísku farþegaþotunnar athuga nú þann möguleika hvort að vélin hafi nýtt sér aðra farþegaþotu og flogið undir skugganum á henni yfir Bengal-flóann og jafnvel lengra í lágri flughæð til að koma ekki fram á ratsjá hersins.

Þetta kemur fram á indverska fréttamiðlunum The Hindu. "Sá sem flaug vélinni hafði greinilega mjög góða kunnáttu bæði á stjórntækjum vélarinnar og siglingatækjum og kunni að skilja ekki eftir sig slóð", segja yfirvöld.

Kenning Keith Ledgerwood

Fugáhugamaður að nafni Keith Ledgerwood, sem einnig er einkaflugmaður, birti á tumblr.com vefsíðu sinni kenningu um að vélin hefði nýtt sér aðra farþegaþotu og flogið í skjóli hennar frá Malacca-sundi á þeim tímapunkti sem hún hvarf af ratsjá malasíska hersins sem var klukkan 18:15 (GMT).

Keith segir í kenningu sinni hafa skoðað Flightradar24.com þar sem fylgjast má með flugumferð í heiminum í rauntíma. Keith gaf því gaum að á þeim tíma sem malasíska vélin hvarf (klukkan 18:15) var Boeing 777-300ER farþegaþota frá Singapore Airlines á sama stað að fljúga yfir á leið sinni frá Singapore til Barcelona (flug SQ 68).

Alltumflug.is birti sl. föstudag kort að hugsanlegri flugleið sem malasíska vélin var talin hafa flogið þegar henni var beint af leið en þar kom í ljós að vélinni hafði verið flogið samkvæmt aljþjóðaflugleiðum og flogið milli staðsetningarpunkta er kallast "waypoints" og farið eftir flugleið sem farþegaþotur fljúga gjarnan eftir á leið til Miðausturlanda og Evrópu.

Sjá má á kortinu að Malaysia Airlines vélin var mjög nálægt vél Singapore Airlines



Keith vill í kenningu sinni meina að malasísku vélinni verið flogið undir skuggann á Singapore Airlines vélinni sem var að nálgast en sú vél flaug áfram eftir P628 leiðinni yfir Andaman-eyjar, yfir Indland og þaðan yfir Pakistan, Afghanistan, Turkmenistan, Íran, Tyrkland, Grikkland og áfram til Barcelona.

Með þessum hætti vill Keith meina að vélinni hefði getað verið flogið óséðri í gegnum þær lofthelgir á meðan ratsjá hefði aðeins greint Singapore Airines vélina.

Hefði Singapore Airlines vélin ekki séð Malaysia-vélina með TCAS-árekstrarvara? (Traffic Collision Avoidance System)

Til að svara þeirri spurningu hvort að Singapore Airlines vélin hefði ekki séð Malaysia-vélina með TCAS-árekstrarvara (Traffic Collision Avoidance System) þá tekur Keith fram að þar sem búið var að aftengja aðalsendibúnað og fjarskiptatæki malasísku vélarinnar þá hefði Singapore-vélin ekki orðið var við hana undir sér.

Samt hefði TCAS-kerfið í malasísku vélinni getað aðstoða flugmennina, eða þá sem flugu vélinni, til að koma auga á Singapore Airlines vélina yfir Malacca-sundi sem er ástæðan að þeir skiptu yfir af waypoint VAMPI og yfir á GIVAL og flogið undir henni þegar hún kom aðvífandi fyrir ofan þá.

Keith bendir á að malasíska vélin hefði síðan einfaldlega getað flogið af leið undan skugganum á Singapore Airlines vélinni eftir að hafa komist með þessum hætti gegnum þau flugumferðarsvæði og lofthelgi óséð og lent á einhverjum flugvelli.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga