flugfréttir

Íslenskt ferðafyrirtæki ætlar að bjóða upp á flug í loftbelg

- Tilraunaflugferðir fara aftur fram í dag á Álftanesi

1. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 10:51

Loftbelgurinn á sveimi yfir Álftanesi í gær  /  Ljósmynd: Instagram (Stefán Guðmundsson)

Allt lítur út fyrir það að Íslendingum og ferðamönnum, sem sækja landið heim, muni standa til boða að fljúga um í loftbelg í sumar og sjá náttúru Íslands úr lofti en íslenskt ferðafyrirtæki er nú í fullum undirbúningi fyrir slíka starfsemi í sumar.

Þótt að einkaflugvélar, svifflugvéla, mótorsvifflugur og önnur fljúgandi faratæki hafi notið vinsælda hér á landi þá hafa loftbelgir ekki verið algeng sjón.

Ferðafyrirtækið TREK Iceland undirbýr nú starfsemi með loftbelg sem fyrirtækið mun taka á leigu frá svissneska loftbelgjaleigunni Atemberaubend-Reise en TREK fékk í síðustu viku loftbelginn afhentann sem kemur nýr frá framleiðandanum Cameron Balloons í Bristol á Englandi.

"Hugmyndin kviknaði í fyrra þegar við vorum á skíðum í Sviss. Við höfum farið nokkrum sinnum út og talað við marga aðila og svo fór allt að gerast", segir Arnar, starfsmaður hjá TREK.

Loftbelgurinn var prófaður nokkrum sinnum í gær á Álftanesi en þeim hjá TREK til halds og trausts verður Ítalinn Martino Lodetti sem hefur 23 ára reynslu af flugi og starfsemi loftbelgja.

TREK segir að áhugasamir sem vilja nota veðurblíðuna í dag gefst kostur á að fara í stuttan túr en nokkrar ferðir verða farnar fram eftir kvöldi. - "Það eru ekki allir sem þora og þetta er ekki fyrir þá sem eru frekar lofthræddir - Annars þá er þetta mjög skemmtilegt - um að gera vera bara vel klæddur", segir Arnar.

Tilraunaferðir lotbelgsins fara fram við túnið vestan Suðurnesvegar milli golfvallarins og Bakkavegar á Álftanesi en ekki er víst að allir komst að þar sem aðeins komast 5 manns fyrir í einu.

"Það er mjög margt í gangi í ferðamannaiðnaðinum á Íslandi sem er sífellt að stækka og þetta er eiginlega bara liður í að bjóða upp á meiri fjölbreytni fyrir ferðamenn og fá nýja upplifun af Íslandi", bætir Arnar við.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga