flugfréttir

Segir malasísk stjórnvöld vera að leyna upplýsingum

- "Ríkisstjórnin veit meira en við vitum"

3. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:32

Anwar Bin Ibrahim, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Malaysíu

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Malaysíu, Anwar Ibrahim, segir að stjórnvöld í landinu séu að leyna og halda aftur af upplýsingum varðandi hvarf malasísku farþegaþotunnar sem myndu gagnast við leitina að vélinni.

Þetta kemur fram í frétt The Daily Telegraph og segir Ibrahim að ratsjárkerfi malasíska hersins sé miklu öflugra en það að vélin hafi hreinlega horfið á radar án þess að enginn hefði gefið því gaum fyrr en það var of seint.

Ibrahim segir að hann hafi sjálfur heimilað uppsetningu á ratsjárkerfinu á sínum tíma þegar hann var fjármálaráðherra Malaysíu árið 1994.

"Það er ekki bara ósættanlegt heldur ógjörningur að enginn hafi orðið var við þegar vélin breytti stefnu sinni. Ratsjáin hefði strax séð ef Boeing 777 vél væri að breyta um stefnu og flogið gegnum fjögur mismunandi héröð í landinu - Malasíski herinn er kannski ekki eins tæknivæddur og bandaríski eða breski herinn en viðbragðstíminn hefði ekki verið lengur til að geta sent orrustuþotu af stað", segir Ibrahim.

"Ég held að malasísk stjórnvöld viti mun meira en við - þau hafa vald til að veita malasíska hernum fyrirmæli eða Malaysia Airlines".

Ibrahim hvetur alþjóðleg yfirvöld til að taka yfir rannsókn málsins og telur hann að aðilar á vegum yfirvalda séu samsekir í hvarfi vélarinnar.

Bæði aðstandendur og ættingjar hafa krafist svara frá malasískum stjórnvöldum og vilja fá að vita hvar ástvinir þeirra eru. Auk þess er margir vilja meina að yfirvöld viti mun meira um hvarf vélarinnar en þau gefa upp.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga