flugfréttir

Telja að hljóðmerkin séu að koma frá svörtu kössunum

- Næsta skref að staðfesta og staðsetja hvaðan merkin koma

7. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:27

Ocean Shield náði að greina hljóðmerkin með Towed Pinger Locator búnaðinum í um 600 km fjarlægð frá þeim stað þar sem kínverska skipið Haixun 01 nam tvö hljóðmerki um helgina

Hljóðmerkin sem ástralska skipið Ocean Shield náði að greina í tvígang eru sterkustu vísbendingarnar sem komið hafa fram í leitinni að malasísku farþegaþotunni og hafa þessar fréttir fært vonir um að leitin gæti verið senn á enda eða mun fyrr en útlitið hefur verið hingað til.

Hljóðmerkin, sem Ocean Shield náði að greina, eru í um 600 kílómetra fjarlægð frá þeim stað þar sem kínverska skipið Haixun 01 greindi púlsmerki sl. föstudag og aftur á laugardag.

Prófessorinn David Stupples segir að þessi merki séu mun áreiðanlegri en þau merki sem kínverska skipið nam þar sem ástralska skipið er að notast við Towed Pinger Locator búnað bandaríska sjóhersins sem er mun öflugri búnaður en neðansjávarhljóðnemi Kínverja.

"Ég er mun bjartsýnni en ég var fyrir viku síðan", sagði Angus Houston, leitarstjórnandi samhæfingarmiðstöðvarinnar í Perth en tók samt fram að enn sé þó ekki búið að finna flak vélarinnar.

Hljóðmerkin koma frá meira dýpi en þar sem flak Titanic liggur á hafsbotni

Hljóðmerkin greindust á 4.500 metra dýpi sem er 800 metrum meira dýpi en sá staður þar sem flak skemmtiferðaskipsins fræga Titanic hvílir á hafsbotni.

Næsta skref er að staðsetja hljóðmerkin nákvæmlega svo hægt sé að senda kafbátavélmennið Bluefin-21 ofan í sjóinn til að finna flakið en hljóðmerkin eru þó að koma frá meira dýpi en kafbátavélmennið þolir.

Houston segir að næstu skref muni þó gerast hægt þar sem fyrst þarf að staðfesta að hljóðin séu að koma frá svörtu kössum vélarinnar - "í mjög djúpum sjá þá gerist allt mjög hægt".

Ástralska skipið sigldi tvisvar sinnum yfir svæðið og í annað skipið náði búnaðurinn að greina hljóðbylgjur í tvær klukkustundir og 20 mínútur en er skipið snéri við að nýju komu hljóðmerkin aftur fram og heyrðust í 13 mínútur í það skiptið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga