flugfréttir

Hætta leit með Towed Pinger Locator og undirbúa Bluefin-21

- Talið að svarti kassinn sé hættur að senda frá sér hljóðmerki

14. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:33

Leit mun nú hefjast með Bluefin-21 kafbátarvélmenninu sem verður sett ofan í sjóinn frá Ocean Shield skipinu

Ekki hefur tekist að greina frekari hljóðmerki í sjónum í Suður-Indlandshafi sem gæti verið frá svarta kassanum og er nú talið að rafhlöðurnar í neyðarsendum kassana séu tómar.

"Við höfum ekki náð að greina nýtt hljóðmerki í sex daga og er komin tími til að leita neðansjávar", sagði Angus Houston, yfirmaður yfir leitaraðgerðunum í Perth, í morgun á blaðamannafundi.

Notast verður við kafbátavélmennið Bluefin-21 sem upphaflega átti að notast við um leið og nákvæm staðsetning væri fundin með Towed Pinger Locator búnaðinum en verið er að undirbúa kafbátavélmennið fyrir djúpsjávarköfun.

Bluefin-21 verður settur ofan í sjóinn frá Ocean Shield skipinu og tekur hver sendiför 24 klukkustundir þar sem kafbátavélmennið mun skanna svæði sem er 5 sinnum 8 kílómetrar að stærð í einu en um er að ræða mun hægari aðgerð en sú sem aðgerð sem hefur farið fram með Towed Pinger Locator búnaðinum.

Á blaðamannafundinum tók Houston það fram að olíubrák hefði fundist í sjónum á því svæði þar sem leitað var eftir frekari hljóðmerkjum og er verið að rannsaka hvort að brákin sé þotueldsneyti en sú rannsókn gæti tekið nokkra daga.

Ellefu herflugvélar, ein einkaþota og 15 skip hafa tekið þátt í leitinni í dag og er leitarsvæðið að þessu sinni 47 þúsund ferkílómetrar að stærð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga