flugfréttir

Segir að hvarf vélarinnar sé Boeing að kenna

- Bandaríkjaforseti heitir því að veita alla mögulega aðstoð í leitinni sem völ er á

28. apríl 2014

|

Frétt skrifuð kl. 05:12

Barack Obama, Bandaríkjaforseti og Najib Razak, forsetisráðherra Malaysíu

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur heitið því að auka aðstoð Bandaríkjanna í leitinni að malasísku farþegaþotunni en forsetinn er nú í opinberi heimsókn í Malaysíu þar sem hann hitti m.a. Najib Razak, forsetisráðherra landisns, og Hishamuddin Hussein, samgönguráðherra Malaysíu sem hefur verið mikið í brennidepli vegna hvarf vélarinnar.

"Ég get staðfest það að Bandaríkin eru algjörlega samvinnufús í að veita allar þá aðstoð sem við getum mögulega veitt", sagði Obama í gær við komuna til Malaysíu.

"Það er augljóst að við vitum ekki öll smáatriðin en við vitum að vélin fór í sjóinn á þessum stað í heiminum. Þetta er stór staður og það þarf mikið afrek og þrótt til að halda leitinni áfram sem mun taka einhvern tíma", sagði Obama.

Najib Razak, segir að á næstu dögum muni yfirvöld í Malaysíu gera frumskýrslu opinbera á hvarfi vélarinnar þar sem m.a. mun koma fram með hvaða hætti flugherinn í landinu ljáðist að taka eftir að farþegaþotu var flogið óséðri gegnum lofthelgina og útskýrt verður hversvegna ekki var brugðist við því.

Skömmu eftir að vélin hvarf komu fréttir af því að vélin hefði sést á frumratsjá malasíska flughersins á leið vestur á bóginn yfir Malaysíu-skagann og út á Andaman-haf en malasísk stjórnvöld höfðu allan tímann þvertekið fyrir þær sögusagnir en forsetisráðherra Malaysíu viðurkenndi loksins í gær að óþekkt loftfar hefði komið fram á ratsjá flughersins.

Fyrrverandi forsetisráðherra Malaysíu kennir Boeing um hvarf vélarinnar

Ástralska dagblaðið Sydney Morning Herald greinir frá því að Mahathir Mohamad, fyrrum forsetisráðherra Malaysíu, hafi sagt að Boeing eigi að taka á sig ábyrgðina fyrir hvarfi vélarinnar og kennir hann Boeing um þetta dularfulla hvarf.


"Boeing smíðaði þessa flugvél og verður flugvélaframleiðandinn því að koma með útskýringu á því hvernig það sé ekki hægt að rekja slóð vélarinnar.

Annað hvort er tækninni verulega ábótavant hjá Boeing eða öryggið ekki nægilegt. Ég myndi ekki vilja ferðast um borð í vélum frá Boeing nema að framleiðandinn geti útskýrt hvernig hægt sé að gera stjórnkerfi vélarinnar óvirk eða hvernig þau geti brugðist með þessum hætti", sagði Mahathir sem gengdi embætti forsetisráðherra Malaysíu frá árinu 1981 til ársins 2003.

"Þótt að flugstjóri vélarinnar hafði ætlað sér að fremja sjálfsvíg þá hefði aðstoðarflugmaðurinn eða áhöfnin reynt að koma í veg fyrir það - En enginn, og ekki einu sinni farþegarnir reyndu að koma í veg fyrir það - Hvarf vélarinnar er Boeing að kenna - hvernig geta þeir framleitt vél sem hverfur með svo auðveldum hætt", bætir Mahathir við.

Verið er að ákveða framhaldið

Sjálfvirki kafbáturinn Bluefin-21 hélt í dag áfram að skanna hafsbotninn á þeim stað í Suður-Indlandshafi þar sem síðustu hljóðmerkin heyrðust sem talin eru hafa komið frá svörtu kössum vélarinnar en slæmt veður hefur sett strik sinn í reikninginn í þeirri aðgerð.

Rannsóknaraðilar og þeir sem stjórna leitinni eru nú að ráðfæra sig um hvernig best sé að halda leitinni áfram þar sem svo virðist sem að kortlagning hafsbotnsins sé ekki að skila neinum árangri.

"Við erum stanslaust að ráðfæra okkur við þá alþjóða samstarfsaðila sem taka þátt í leitinni um hvernig sé best að haga leitinni upp á framhaldið að gera", segir í yfirlýsingu frá samhæfingarmiðstöðinni í Perth í Ástralíu, þaðan sem leitinni er stjórnað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga