flugfréttir
Bresk kona telur sig hafa séð MH370 í ljósum logum er hún var á siglingu yfir Indlandshaf
Katherine Tee um borð í skútunni á leið frá Indlandi til Taílands
Bresk kona telur sig hafa séð malasísku farþegaþotuna á flugi í ljósum logum skammt vestur af Malaysíu-skaganum, nóttuna sem vélin hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking.
Katherine Tee, sem er 41 árs, hefur verið á siglingu frá Cochina á Indlandi til Phuket í Taílandi á skútu ásamt eiginmanni sínum en þau lögðu af stað frá Indlandi þann 10. febrúar og komu þann 10. mars í höfn í Phuket.
Katherine var ein upp á dekki að horfa á stjörnurnar á meðan eiginmaður hennar var sofandi inn í bát þegar hún sá það sem hún telur hafa verið flugvél í ljósum logum.
"Ég var ein úti og maðurinn minn var sofandi inn í bát þegar ég sá eitthvað sem leit út eins og flugvél sem var alelda - eða
það er það sem mér sýndist ég sjá - Þetta vakti athygli mína því ég hef aldrei séð svona áður. Þetta var eins og appelsínugult og skært eins og eldur
og það var reykur sem fylgdi með", segir Katherine sem sagði að hún hefði einnig séð tvær aðrar flugvélar á næturhimninum en þessi hafi flogið töluvert lægra.
"Það voru tvær aðrar vélar á sama tíma að fljúga í öfuga átt. Þær vélar höfðu venjuleg ljós og ég hugsaði að ef þetta væri
í alvöru eldur þá myndu hinar vélarnar sennilega tilkynna það".
"Hún kom aftan að okkur úr norðri en þegar ég leit aftur þá hafði vélin breytt um stefnu og haldið til suðurs frá okkur".
Frétti af malasísku farþegaþotunni tveimur dögum eftir hvarfið
Katherine sagði að hún hefði ekki sagt eiginmanni sínum frá þessu þar sem siglingin hefði tekið sinn toll af hjónabandi
þeirra og þau varla talast við í viku en er þau komu í land í Phuket þann 10. mars þá fyrst frétti hún af malasísku farþegaþotunni.
"Ég hélt að þetta myndi ekki breyta neinu að segja frá því sem ég sá því það voru þegar margir sem sögðust hafa
séð flugvélina eða komið auga á hana á gervitunglamyndum og svo gerði ég ráð fyrir að þeir myndu ná að rekja vélina
með GPS eða einhverju slíku".
"Mér datt ekki í hug einu sinni að senda út neyðarkall því þá liti ég út eins og auli ef það sem ég sá hefði verið ekkert merkilegt".
Sagði frá atvikinu fyrst á spjallsíðu um siglingar
Það var ekki fyrr en sl. laugardag að Katherine frétti af skipi sem var við leit af MH370 á Andaman-hafi að hún fór
að skoða upplýsingar úr GPS-inum í bátnum en hún og eiginmaður hennar báru saman leiðin sem þau höfðu siglt við þá flugleið sem malasíska farþegaþotan átti að hafa tekið
til vesturs út á Malacca-sundið.
Á meðfylgjandi mynd má sjá siglingarleiðina sem hún og eiginmaður hennar sigldu (græna línan) samanborið
við flugleið malasísku vélarinnar (fjólubláa línan) en Katherine setti inn skjáskot af siglingarleiðinni úr GPS-tækinu á spjallsíðuna Cruise Forum sem
er fyrir siglingarfólk.
Marc Horn, eiginmaður Katherine, birti siglingarleiðina þeirra sem hefur verið borin saman við slóð malasísku farþegaþotunnar
Kortið sýnir að hjónin voru á sama stað er malasíska vélin átti að hafa flogið yfir en ekki er enn fullvitað hvort þetta hafi verið nákvæmlega á sama tíma.
Yfirvöld komust að því að vélin
hefði flogið þessa leið er upplýsingar voru skoðaðar úr frumratsjá malasíska flughersins og því næst var reiknað úr frá upplýsingum úr gervihnetti að vélinni hefði verið flogið því næst lengst suður í Indlandshaf.
Hjónin hafa sent skýrslu um málið til samhæfingardeild leitarinnar í Ástralíu en Katherine segir að hún vildi óska þess að
hún hefði brugðist fyrr við.
Annað kort sem sýnir að leið bátsins og malasísku flugvélarinnar skárust um 150 kílómetra norður af Súmötru
Margir hafa sett sig í samband við Katherine eftir að hún birti frásögn sína en samkvæmt vefsíðunni Cruisers Forum eru
margir sem hafa aðstoðað hana varðandi hvernig og við hvern væri best að setja sig í samband við.
"Ég hef allavega haft samband við viðeigandi yfirvöld - Ég trúi því ekki hverju ég sá svo afhverju ættu þeir að trúa því", segir Katherine sem vonast
til að þetta gæti útskýrt eitthvað hvað gerðist.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.