flugfréttir

Loksins nýr flugleikur á leiðinni - Microsoft Flight

- Microsoft Flight kemur út 29. febrúar - ókeypis

15. febrúar 2012

|

Frétt skrifuð kl. 20:43

Úr flugleiknum Microsoft Flight

Tölvuleikjanördar ættu að setja sig í stellingar því þann 29. febrúar nk. mun Microsoft gefa út "Microsoft Flight" flugleikinn sem mun standa öllum til boða ókeypis með því að niðurhala honum af vefsíðu Microsoft.

Leikurinn mun að vísu ekki snúast um allan heiminn eins og hinir Flight Simulator leikirnir en til að byrja með mun hann gerast á Hawaii-eyjum þar sem notendur fljúga m.a. um í vél af gerðinni Vans RV-6A og verða um 20 áskoranir í boði (mission) til að velja um.

Leikurinn er ekki eins og Flight Simulator leikirnir hefðbundnu sem kom fyrst út fyrir 30 árum en Microsoft ætlar sér að hafa leikinn ókeypis og notendur greiða síðan til að niðurhala viðbætum, nýjum flugvélum og fleiri flugvöllum, landslögum og fleiri viðbætur sem Microsoft mun koma með.

Mjög mikið hefur verið lagt í að gera öllum smáatriðum skil þegar flogið er um Hawaii-eyjarnar og má sjá alla þá náttúrufegurð sem eyjarnar hafa upp á að bjóða og liggur við að hægt sé að sjá fólk úti að borða ís í miðbæ Honolulu ef grafíkin er stillt á bestu stillingar.

Meðal véla sem má fljúga í Flight er Icon A5 sem fylgir frítt með leiknum, Boeing-Stearman, Maule M-7 og North American P-51 Mustang en stefnan er að vélarnar sem munu verða hannaðar fyrir leikinn sé klassískar vélar en ekki hinu nútímalegu farþegaþotur sem hafa einkennt Flight Simulator-leikina.

Metnaður framleiðanda og hönnuða bakvið leikinn er mjög mikill og kynntu þér sér flugvélarnar í leiknum í þaula til að ná að gera hverri einustu skrúfu skil. Þrívíddarhönnunin sem var gerð fyrir leikinn er mjög nákvæmt og eru gæðin og smáatriðin mun meiri á vélunum, innan sem utan og mun betri grafík en var í FSX.



SKjáskot af Microsoft Flight









Nánar má skoða myndbandið um Microsoft Flight leikinn hér að neðan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga